30.11.2010
Hér fyrir neðan gefur að líta myndir frá málþinginu Hver á þá að lækna mig?, sem haldið var á Grand hóteli í Reykjavík mánudaginn 25.október 2010.
20.10.2010
Dagskrá málþingsins Hver á þá að lækna mig?, sem fram fer á Grand Hótel Reykjavík næstkomandi mánudag í tilefni af þrjátíu ára afmæli Umhyggju, fylgir hér á eftir:
07.10.2010
Málþing um heilbrigðisþjónustu langveikra barna árið 2015 verður haldið mánudaginn 25.október 2010 í Hvammi á Grandhótel við Sigtún.Þingið hefst kl.13.00 og stendur til klukkan 16.
01.09.2010
Smelltu á myndina til að nálgast rafræna útgáfu blaðsins.
20.08.2010
Margir einstaklingar leggja Umhyggju lið í Reykjavíkurmaraþoninu í ár, en tugir einstaklinga hafa valið að láta áheit sín renna til Umhyggju eða aðildarfélaga hennar í ár og eru þeim að sjálfsögðu færðar kærar þakkir fyrir.
28.05.2010
Útilegukortið mun í ár styrkja Umhyggju með gjöf á þrjátíu Útilegukortum, sem ráðstafað verður til fjölskyldna langveikra barna.Með Útilegukortinu geta tveir fullorðnir og fjögur börn undir sextán ára aldri gist endurgjaldslaust á 39 tjaldsvæðum vítt og breitt um landið á árinu 2010, eins lengi og tjaldsvæðin eru opin.
10.05.2010
Nýlega var undirritaður samstarfssamningur á milli Umhyggju, félags til stuðnings langveikum börnum, og Iceland Express til þriggja ára.Samkomulagið felur í sér að Iceland Express mun afhenda Umhyggju 13 ferðir fram og til baka á ári til áfangastaða félagsins.
09.05.2010
Þroskahjálp á Suðurlandi býður félagsmönnum í Þroskahjálp, Umhyggju, Öryrkjabandalagi og hliðstæðum samtökum upp á orlofshús á Selfossi.Gott aðgengi og sjúkrarúm.
01.04.2010
Smelltu á myndina til að nálgast rafræna útgáfu blaðsins.
12.12.2009
Sala á jólakortum Umhyggju er hafin.Eins og undanfarin ár hefur Umhyggja fengið börn sem dvelja á Barnaspítala Hringsins til að teikna mynd á jólakortið. Að þessu sinni er listamaður kortsins Elísa Sól Sonjudóttir, 10 ára.