Umhyggja býður aðstandendum langveikra barna í Umhyggju og aðildarfélögum Umhyggju upp á gjaldfrjáls stuðningsviðtöl sálfræðings ef þeir óska. Ráðgjöfin stendur eingöngu foreldrum langveikra barna að 20 ára aldri til boða. Ekki er boðið upp á viðtöl fyrir uppkomin langveik börn. Fjöldi viðtala er allt að 10 skiptum.
Sálfræðiviðtöl fara fram hjá Domus Mentis - geðheilsustöð en þar starfar þverfaglegur hópur sérfræðinga. Domus Mentis er til húsa í Þverholti 14, 4. hæð, en einnig er hægt að fá fjarviðtöl gegnum netið. Eftir að umsókn um sálfræðiþjónustu hefur verið send til Umhyggju mun Domus Mentis hafa samband vegna tímabókunar innan tveggja vikna.
Hægt er að óska eftir viðtali með því að fylla út eyðublaðið hér að neðan.
Umhyggja offers support sessions with a psychologist, free of charge, for parents of chronically ill children who are a member of Umhyggja or member association. Psychological support is only available for parents of chronically ill children up to 20 years old. We do not provid psychological services for chronically ill adults. The number of sessions provided is up to 10 sessions.
The sessions take place at Domus Mentis - geðheilsustöð, Þverholt 14, 4th floor or via the internet. After Umhyggja receives an application for psychological support, Domus Mentis will contact you to book an appointement within a short period of time.
Applicants can fill out the application form below.