Fréttir allt

Team Rynkeby hjólar fyrir Umhyggju

Frá árinu 2022 hefur íslenska Team Rynkeby liðið hjólað til styrktar Umhyggju félagi langveikra barna. Það er stórkostlegt að fylgjast með Team Rynkeby liðinu á Íslandi leggja af stað ár hvert eftir heilan vetur af æfingum, en þau fljúga frá Íslandi til Danmerkur og hjóla þaðan til Parísar, um 1.300 kílómetrar á 8 dögum.

Sumarlokun og nýtt húsnæði

Skrifstofa Umhyggju verður lokuð vegna sumarleyfa frá 6. júlí til 10. ágúst. Eftir sumarleyfi opnum við skrifstofuna á nýjum stað, á 2. hæð í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Þar verður félagið í góðum félagsskap fjölda annarra hagsmunafélaga sem láta sig mannréttindi varða.

Góðgerðarverkefnið Gleðjum saman

Góðgerðarverkefnið Gleðjum saman er dýrmætt verkefni sem snýst um að gefa og afhenda áritaðar treyjur frá íþróttafólki til einstaklinga sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, glíma við fötlun/sjúkdóma eða veikinda eða eru svokallaðar hvunndagshetjur.

Styrkur frá nemendum Grunnskólans í Þorlákshöfn

Þriðjudaginn 9. júní heimsóttum við hjá Umhyggju Grunnskólann í Þorlákshöfn og veittum viðtöku styrk að upphæð 250.000 krónur. Styrkurinn er ágóði af Þemadögum Þorpsins sem haldnir voru í skólanum fyrr á þessu skólaári.

Lína Langsokkur í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið býður fjölskyldum langveikra og fatlaðra barna sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum upp á miða á stórskemmtilegu leiksýninguna um Línu Langsokk!

Aðalfundur Umhyggju 12. júní kl. 12:15

Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn fimmtudaginn 12. júní næstkomandi kl. 12:15, í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

Hetjuteppi og fígúrur á leikstofu Barnaspítala Hringsins

Á dögunum kíktum við hjá Umhyggju í heimsókn á leikstofu Barnaspítala Hringsins og afhentum krökkunum Hetjuteppi og skemmtilegar fígúrur frá versluninni Okashi. Innilegar þakkir til Íslenska bútasaumsfélagsins fyrir yndislega falleg hetjuteppi og til Okashi fyrir að gleðja börnin með fígúrunum sínum.

Flutningar framundan

Viðvera á skrifstofu Umhyggju verður takmörkuð á komandi vikum vegna flutninga, en í júní munum við opna á nýjum stað. Við hvetjum því alla til að heyra í okkur annað hvort símleiðis í síma 5524242 eða í gegnum tölvupóst á umhyggja@umhyggja.is. Þannig getum við mælt okkur mót ef hentar eða veitt ráðgjöf og þjónustu með aðstoð tækninnar. Við hlökkum svo til að taka á móti ykkur aftur á nýjum stað!

Gleðilega páska!

Skrifstofa Umhyggju verður lokuð í dymbilvikunni vegna páskaleyfis. Við opnum á ný þriðjudaginn 7. apríl og verður öllum fyrirspurnum svarað þá. Gleðilega páska!

Gleði sem gefur áfram

Spennandi samstarf Okashi og Umhyggju. Í hverjum mánuði er valin ein vörulína hjá Okashi þar sem 5–10% af sölu rennur til Umhyggju.