Fréttir allt

Skrifstofa lokuð mánudaginn 31.08

Skrifstofa Umhyggju er lokuð mánudaginn 31.08.

Velkomin á Umhyggjudaginn 30. ágúst

Verið öll hjartanlega velkomin á Umhyggjudaginn þann 30. ágúst milli klukkan 12 og 16 í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum! Frítt verður í garðinn fyrir þá sem skrá sig og ís í boði meðan birgðir endast. Einnig munu félagar úr Team Rynkebyliðinu vera á svæðinu með hjólin sín og kynna verkefnið.

Bolir og buff fyrir Umhyggjuhlaupara

Nú styttist heldur betur í Reykjavíkurmaraþonið en það fer fram næstkomandi laugardag,  22. ágúst. Fimmtudaginn 20. ágúst milli kl. 11-14 er öllum hlaupurum sem hlaupa fyrir Umhyggju velkomið að koma á skrifstofu félagsins í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, að sækja hlaupabol og buff merkt félaginu. Þeir sem ekki komast á þeim tíma eru beðnir um að hafa samband við okkur í tölvupósti á umhyggja@umhyggja.is eða í síma 552-4242 og við mælum okkur mót.