Veraldarvefurinn

Það eru margar leiðir til að fylgjast með því sem er að gerast í málefnum langveikra barna. Nú höfum við  sett nýjan og endurbættan vef í loftið og er það vona okkar að hann nýtist ykkur vel.  Viljum líka minna ykkur facebókar síðu félagsins en  um að gera að skella „like“ á síðuna og fylgjast vel með á þeim vettvangi.

Mörg aðildarfélög Umhyggju eru komin með facebook-síður og eru virk í að setja inn upplýsingar um eitt og annað sem snýr að félögunum og því starfi sem þar fer fram. Það er um að gera að leita þau uppi og gerast vinur eða setja „like“ á síðurnar.