Umhyggja er félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og barna með umfangsmiklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Í félaginu starfa foreldrar og fagfólk innan heilbrigðiskerfisins.
Umhyggja er sprottin frá norræna félaginu Nordisk förening for syke barns behove, NOBAB. Íslandsdeild norrænu samtakanna var stofnuð í maí 1980, en nokkrum árum síðar var nafninu breytt í Umhyggja. Upphaflegir stofnendur Umhyggju voru fagfólk á barnadeildum Landspítala og Landakotsspítala og var félaginu ætlað að bæta hag barna á sjúkrahúsum og standa vörð um félagsleg réttindi langveikra barna. Smám saman þróaðist starfsemin og æ fleiri foreldrar gengu í félagið. Stærsta breytingin varð í febrúar 1996 þegar átta foreldrafélög gengu í Umhyggju, en í dag eru aðildarfélögin orðin 19 talsins.
Merki Umhyggju er opinn hjartalaga faðmur sem undirstrikar það að öll börn sem glíma við langvinn veikindi eða hafa umfangsmiklar stuðningsþarfir eru velkomin. Umhyggja byggir starf sitt á kærleika og jafnrétti.
Hjá Umhyggju starfa Árný Ingvarsdóttir og Þórdís Helgadóttir Thors.
Reikningsnúmer Umhyggju: 0101-15-371646
Kennitala Umhyggju: 691086-1199