Fréttir allt

Áskorun vegna launagreiðslna til foreldra langveikra barna sem eru í verndarsóttkví

Umhyggja hefur sent frá sér yfirlýsingu og áskorun til stjórnvalda þess efnis að löggjöf Alþingis um launagreiðslur til fólks sem gert er að sæta sóttkví nái einnig yfir foreldra langveikra barna með alvarlega sjúkdóma sem eru í verndarsóttkví. Er það í kjölfar útgefinna ráðlegginga Embættis landlæknis um að tilteknir hópar langveikra barna sæki ekki skóla eða leikskóla vegna smithættu.

Breytingar á opnun skrifstofu vegna Covid19

Í ljósi aðstæðna í samfélaginu og samkomubanns vegna Covid19 höfum við hjá Umhyggju ákveðið að hafa skrifstofuna á Háaleitisbraut ekki opna fyrir gesti fram yfir páska. Starfsemin er þó í fullum gangi og við hvetjum alla til að hringja (opið fyrir símann milli kl.9 og 16 alla virka daga) eða senda okkur tölvupóst ef eitthvað er.

Viðvera Umhyggju á Barnaspítala fellur niður meðan neyðarástand er í gildi

Við vekjum athygli á því að Umhyggja mun ekki vera með fasta viðveru á Barnaspítala Hringsins 1. og 3. fimmtudag í mánuði á meðan neyðarstig Almannavarna er virkt. Við hvetjum því alla til að hafa samband símleiðis í síma 5524242, en síminn er opinn milli kl.9 og 16 alla virka daga.

Styrkur frá 4. bekk í Álftanesskóla

Þann 8. desember síðastliðinn hélt 4. bekkur í Álftanesskóla góðgerðardag þar sem söfnuðust kr.77.990 krónur. Krakkarnir fengu að velja málefni til að styrkja og varð Umhyggja fyrir valinu.

Leiðbeiningar vegna kórónaveirunnar

Við hjá Umhyggju hvetjum alla til að kynna sér vel leiðbeiningar Landlæknisembættisins vegna Covid19 kórónaveirunnar. Stöndum saman í því að hefta útbreiðslu veirunnar og verjum þannig viðkvæmustu hópana í samfélaginu.

Skráning á KVAN námskeið fyrir 13-15 ára hafin

Nú í vetur mun Umhyggja bjóða langveikum börnum í aðildarfélögum Umhyggju upp á KVAN sjálfstyrkingarnámskeið. Námskeiðið er ætlað 13 - 15 ára börnum (8. - 10. bekkur) og verður kennt á miðvikudögum frá kl. 18 - 21 í húsakynnum KVAN í Kópavogi. Námskeiðið er 8 skipti, hefst miðvikudaginn 11. mars og lýkur miðvikudaginn 29. apríl. Skráning er hér að neðan, en 15 pláss eru laus á námskeiðinu.

Lokað vegna veðurs föstudaginn 14. febrúar

Skrifstofa Umhyggju verður lokuð á morgun, föstudaginn 14. febrúar, vegna þess aftakaveðurs sem spáð er á höfuðborgarsvæðinu. Við óskum ykkur góðrar helgar og farið varlega í vonda veðrinu.

Málþing í tilefni af Degi sjaldgæfra sjúkdóma 28. febrúar næstkomandi

Þann 28.febrúar næstkomandi standa Einstök börn og Greiningar- og rágjafarstöð ríkisins fyrir málþingi í tilefni af Degi sjaldgæfra sjúkdóma. Endilega kynnið ykkur málið, öllum opið og aðgangur ókeypis.

Opið fyrir umsóknir vegna sumardvalar í orlofshúsum Umhyggju

Nú er opið fyrir umsóknir vegna sumarúthlutunar í orlofshúsum Umhyggju en umsóknarfrestur rennur út 15. mars. Umsóknir verða teknar til meðferðar eftir að umsóknarfresturinn rennur út en tilkynnt verður um úthlutun fyrir 10. apríl.

Brúðhjón styrkja Umhyggju um 500.000 krónur

Laugardaginn 11. janúar gengu þau Smári Helgason og Hjördís Björk Garðarsdóttir í hjónaband. Þau afþökkuðu allar gjafir en buðu gestum þess í stað að leggja í sjóð til styrktar Umhyggju. Í dag færðu þau síðan Umhyggju kr.500.000. Við þökkum brúðhjónunum innilega fyrir þetta frábæra framlag og óskum þeim hjartanlega til hamingju með hvort annað!