12.06.2026
Þriðjudaginn 9. júní heimsóttum við hjá Umhyggju Grunnskólann í Þorlákshöfn og veittum viðtöku styrk að upphæð 250.000 krónur. Styrkurinn er ágóði af Þemadögum Þorpsins sem haldnir voru í skólanum fyrr á þessu skólaári.
14.05.2026
Þjóðleikhúsið býður fjölskyldum langveikra og fatlaðra barna sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum upp á miða á stórskemmtilegu leiksýninguna um Línu Langsokk!
12.05.2026
Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn fimmtudaginn 12. júní næstkomandi kl. 12:15, í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
05.05.2026
Á dögunum kíktum við hjá Umhyggju í heimsókn á leikstofu Barnaspítala Hringsins og afhentum krökkunum Hetjuteppi og skemmtilegar fígúrur frá versluninni Okashi. Innilegar þakkir til Íslenska bútasaumsfélagsins fyrir yndislega falleg hetjuteppi og til Okashi fyrir að gleðja börnin með fígúrunum sínum.
07.04.2026
Viðvera á skrifstofu Umhyggju verður takmörkuð á komandi vikum vegna flutninga, en í júní munum við opna á nýjum stað. Við hvetjum því alla til að heyra í okkur annað hvort símleiðis í síma 5524242 eða í gegnum tölvupóst á umhyggja@umhyggja.is. Þannig getum við mælt okkur mót ef hentar eða veitt ráðgjöf og þjónustu með aðstoð tækninnar.
Við hlökkum svo til að taka á móti ykkur aftur á nýjum stað!
29.03.2026
Skrifstofa Umhyggju verður lokuð í dymbilvikunni vegna páskaleyfis. Við opnum á ný þriðjudaginn 7. apríl og verður öllum fyrirspurnum svarað þá.
Gleðilega páska!
23.03.2026
Spennandi samstarf Okashi og Umhyggju. Í hverjum mánuði er valin ein vörulína hjá Okashi þar sem 5–10% af sölu rennur til Umhyggju.
16.03.2026
Tölvupóstur Umhyggju hefur legið niðri í morgun og því hefur hvorki verið hægt að senda né fá frá okkur tölvupóst. Unnið er að viðgerðum og vonumst við til þess að póstkerfið komist í lag á næstu klukkustundum.
27.02.2026
Team Rynkeby er einstakt hjólalið sem hjólar frá Danmörku til Parísar á 7 dögum og safnar styrkjum fyrir Umhyggju.
12.02.2026
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum í sumar. Um er að ræða tímabilið 29. maí til 28. ágúst og eru húsin leigð út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.