Team Rynkeby er evrópskt góðgerðarverkefni sem gengur út á að hjóla til Parísar til styrktar börnum með alvarlega sjúkdóma. Verkefnið hófst árið 2002 þegar 11 áhugamenn um hjólreiðar sem allir tengdust safaframleiðandanum Rynkeby Foods A/S, ákváðu að hjóla frá Danmörku til Parísar.
Rynkeby Foods var aðal styrktaraðili ferðarinnar en liðsmenn fengu einnig stuðning frá öðrum fyrirtækjum. Í raun gekk svo vel hjá fyrsta Team Rynkeby liðinu að safna styrkjum að þegar þeir komu aftur heim frá París viku seinna var enn ónotaður styrkur að andvirði 5100 evra. Liðið gaf afganginn til félags krabbameinsjúkra barna við Háskólasjúkrahúsið í Óðinsvéum; og þannig hófst þetta öfluga verkefni sem nú er orðin að dýrmætri hefð um alla Evrópu.
Frá árinu 2022 hefur íslenska Team Rynkeby liðið hjólað til styrktar Umhyggju félagi langveikra barna. Það er stórkostlegt að fylgjast með Team Rynkeby liðinu á Íslandi leggja af stað ár hvert eftir heilan vetur af æfingum, en þau fljúga frá Íslandi til Danmerkur og hjóla þaðan til Parísar, um 1.200 kílómetrar á 7 dögum.
Eljusemin, dugnaðurinn, æfingarnar, skipulagning, þrautseigjan og styrkurinn sem fólkið í liðinu sýnir er ótrúlegur. Ferðalögin, hjólin og allt annað er á þeirra eigin kostnað og því rennur hver einasta króna til málstaðarins. Með framlaginu gefur Team Rynkeby von, ekki bara til barnanna í dag heldur einnig til framtíðarinnar, þar sem við getum haldið áfram að bæta lífsgæði langveikra barna.
Upphæðirnar sem hafa safnast hvert ár eru:

Nú er liðið á fjórða degi ferðalagsins og hjólin snúast, stemningin er góð og tilgangurinn er dýrmætur. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með liðinu á samfélagsmiðlum en liðið hefur verið duglegt að deila myndum frá ferðinni sem sýna vel öflugan liðsanda og samheldnina.
Team Rynkeby minnir okkur mikilvægi þess að standa saman fyrir langveik börn og fjölskyldur þeirra en í veikindum og á erfiðum tíma skiptir stuðningur miklu máli.
Við viljum benda ykkur á að enn er hægt að styrkja liðið, en hér má sjá upplýsingar:

Við munum halda áfram að fylgjast með ferðalaginu og deila með ykkur fréttum og myndum næstu daga.
Áfram Gulu hetjurnar og takk fyrir að hjóla fyrir Umhyggju <3
Hér má lesa enn meira um Team Rynkeby.