Bolir og buff fyrir Umhyggjuhlaupara

Nú styttist heldur betur í Reykjavíkurmaraþonið en það fer fram næstkomandi laugardag,  22. ágúst.

Fimmtudaginn 20. ágúst milli kl. 10-14 er öllum hlaupurum sem hlaupa fyrir Umhyggju velkomið að koma á skrifstofu félagsins í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, að sækja hlaupabol og buff merkt félaginu. Þeir sem ekki komast á þeim tíma eru beðnir um að hafa samband við okkur í tölvupósti á umhyggja@umhyggja.is eða í síma 552-4242 og við mælum okkur mót.

Við óskum öllum hlaupurum góðs gengis og þökkum innilega fyrir okkur!