Góðgerðarverkefnið Gleðjum saman
15.06.2026
Góðgerðarverkefnið Gleðjum saman er dýrmætt verkefni sem snýst um að gefa og afhenda áritaðar treyjur frá íþróttafólki til einstaklinga sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, glíma við fötlun/sjúkdóma eða veikinda eða eru svokallaðar hvunndagshetjur.
Orri Rafn Sigurðarson stofnandi verkefnisins kíkti til Umhyggju á dögunum og fræddi okkur um verkefnið og hugmyndina sem liggur að baki.
Starfið sem unnið er með þessu verkefni er ómetanlegt og það leikur enginn vafi á því að markmiði þess er náð þegar börnin fá afhentar áritaðar treyjur og tækifæri til þess að njóta samveru með okkar fremsta íþróttafólki.
Hingað til hafa 57 treyjur verið afhentar og skapað ómælda gleði samhliða en verkefninu er hvergi nærri lokið og verða fleiri treyjur afhentar á næstunni.
Við hvetjum ykkur öll til að fylgjast með og kynna ykkur þetta frábæra verkefni og þökkum sömuleiðis Orra fyrir þessa dýrmætu vinnu.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á samfélagsmiðlum undir nafninu: Gleðjum saman.