16.03.2026
Tölvupóstur Umhyggju hefur legið niðri í morgun og því hefur hvorki verið hægt að senda né fá frá okkur tölvupóst. Unnið er að viðgerðum og vonumst við til þess að póstkerfið komist í lag á næstu klukkustundum.
27.02.2026
Team Rynkeby er einstakt hjólalið sem hjólar frá Danmörku til Parísar á 7 dögum og safnar styrkjum fyrir Umhyggju.
12.02.2026
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum í sumar. Um er að ræða tímabilið 29. maí til 28. ágúst og eru húsin leigð út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.
27.01.2026
Ertu foreldri langveiks barns með miklar stuðningsþarfir? Þarftu að komast í „hvíldarinnlögn“?
Foreldrar langveikra barna geta nú aftur fram á vor 2026 sótt um 2ja nátta gistingu í vel útbúinni og uppábúinni íbúð í Borgarnesi sér að kostnaðarlausu. Um er að ræða einstakt framlag velunnara félagsins til foreldra langveikra barna innan Umhyggju og aðildarfélaga og fer umsóknarferlið í gegnum skrifstofu Umhyggju. Dvölin er eingöngu ætluð til hvíldar fyrir foreldra og því ekki gert ráð fyrir að börn komi með.
06.01.2026
Athugið: Umsóknarfrestur er liðinn. Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum um páskana. Úthlutunartímabilið skiptist í tvennt, annars vegar frá 27. mars til 1. apríl (föstudegi fyrir Pálmasunnudag til miðvikudags í Dymbilviku) og hins vegar 1. apríl til 6. apríl (miðvikudegi í Dymbilviku til annars í páskum). Umsóknarfrestur er til 15. janúar og niðurstöður úthlutunar munu liggja fyrir í kringum 10. febrúar.
05.01.2026
Skrifstofa Umhyggju er lokuð í dag, mánudaginn 5. janúar vegna veikinda starfsfólks. Hægt er að senda tölvupóst á umhyggja@umhyggja.is og verður honum svarað við fyrsta tækifæri.
19.12.2025
Umhyggja - félag langveikra barna óskar ykkur gleðilegrar hátíðar með von um gott og gjöfult nýtt ár. Við þökkum ykkur öllum samfylgdina og stuðninginn á árinu sem er að líða.
Skrifstofa félagsins verður lokuð frá hádegi 20. desember og opnar á ný fimmtudaginn 2. janúar.
03.12.2025
Þann 10. næstkomandi stendur Umhyggja í þriðja skipti fyrir sérstökum sýningum á Ævintýri í Jólaskógi með bættu aðgengi, nú í samstarfi við Sjónarhól, Þroskahjálp, ÖBÍ og Gló stuðningsfélag. Sýningin hentar öllum sem þurfa bætt aðgengi, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna.
12.11.2025
Á dögunum fengum við afar ánægjulega heimsókn á skrifstofu Umhyggju, þegar þeir Júlíus Þ. Jónsson, Ólafur Björnsson og Ásgeir Ásgeirsson litu við. Þeir eru félagar í Kaupmannasamtökum Íslands, en félagið styrkti Umhyggju í sumar með kaupum á ýmsum búnaði fyrir orlofshús og íbúð félagsins fyrir alls 814.225 þúsund krónur.
07.11.2025
Það gleður okkur að segja frá því að Sólblómabandið er nú fáanlegt hjá Umhyggju - félagi langveikra barna. Sólblómabandið er ætlað fólki með ósýnilega fötlun, sjúkdóma eða skerðingar. Sá sem ber bandið gefur á látlausan hátt til kynna að hann þurfi mögulega á skilningi, aðstoð og sveigjanleika að halda t.d. í samgöngum, á fjölförnum stöðum, í vinnu eða verslunum. Með sólblómabandinu má auka skilning og tillitssemi annarra í umhverfinu í garð þess sem ber bandið.