Orlofshús sumarið 2017

Umsóknarfrestur fyrir orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi eða Vaðlaborgum fyrir sumarið 2017 er til 15. mars næstkomandi. Félagar í Umhyggju og aðildarfélögum Umhyggju, sem greitt hafa félagsgjöld,  eiga rétt á að sækja um dvöl í húsunum. 

Umsækjendur eru beðnir um að fylla inn allar umbeðnar upplýsingar á umsóknareyðublaðinu. Svör um úthlutun munu berast umsækjendum í apríl, en vakin er athygli á því að langveik börn og fjölskyldur þeirra ganga fyrir þegar umsóknir eru afgreiddar. 

Athugið að þeir sem ekki fengu úthlutað sumarið 2016 ganga fyrir í úthlutun fyrir sumarið 2017.