Ársskýrsla stjórnar og aðalfundur Umhyggju

Við minnum á að aðalfundur Umhyggju verður haldinn þriðjudaginn 17. apríl næstkomandi, kl.20. Fundurinn verður haldinn í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4.hæð.  Kosningarétt hafa allir þeir sem  eru skráðir félagar í Umhyggju og skuldlausir við félagið, a.m.k. tveimur vikum fyrir fundinn, en á fundinum verður kosið um þrjú laus sæti í stjórn. 

Engar tillögur að lagabreytingum hafa borist að þessu sinni, en hér má sjá ársskýrslu stjórnar fyrir starfsárið 2017.

Við hlökkum til að sjá ykkur!