Aðgangur að MasterClass streymisveitunni í boði fyrir 50 foreldra langveikra barna

UPPFÆRT: Því miður eru allir aðgangspassarnir gengnir út.

Nú getum við hjá Umhyggju í samstarfi við MasterClass (masterclass.com) boðið 50 foreldrum langveikra barna upp á ókeypis ársáskrift að streymisveitunni MasterClass þar sem margir af færustu fyrirlesurum, frumkvöðlum og kennurum heims miðla af kunnáttu sinni og færni. Frábært tækifæri fyrir alla þá sem langar að kynna sér nýja hluti, fræðast og víkka sjóndeildarhringinn.

Um er að ræða 50 árspassa og er hægt að sækja um hér að neðan. Þegar úthlutun liggur fyrir verður hverjum og einum sendur aðgangstengill. Úthlutun hefst föstudaginn 8. apríl og mun standa þar til öllum pössunum hefur verið úthlutað.

Forgang hafa þeir foreldrar sem þiggja foreldragreiðslur og eru þ.a.l. utan almenns vinnumarkaðar og skóla.

Sækja um