Vorveisla stangveiðimanna til styrktar langveikum börnum

Hópur lífsglaðra stangaveiðimanna hefur tekið sig saman og blæs til glæsilegrar vorveislu í Glersalnum Kópavogi laugardagskvöldið 3. maí nk. Meistarakokkurinn Sturla Birgisson töfrar fram dýrindis veitingar og með þeim verða drukknar guðaveigar. Bryddað verður upp á ýmsum skemmtiatriðum og uppátækjum undir veislustjórn skemmtikraftsins og eftirhermunnar Karls Örvarssonar.

DAGSKRÁ:
- Fordrykkur kl. 19.30
- Borðhald og skemmtidagskrá
- Uppboð á veiðileyfum ofl.
- Leynigestur
- Veiðimannablúshljómsveitin Blue Charm
- Sannar veiðisögur ofl. ofl.
- Dj Collie Dog

Miðaverð 6900 kr.

Miðasala fer fram í Veiðibúðinni við lækinn eða sendið póst á:

oddur@nordicseafood.is
thorbjorn@hraunhamar.is
bjornk@vog.is
vedecaceo@gmail.is

Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér sæti, því sætafjöldi er takmarkaður.

Stefnt er á að gera veisluna að árvissum viðburði og því um að gera að vera með frá byrjun!

Góða skemmtun!

Allur ágóði af rennur til langveikra barna.