Viðskiptaráð Íslands leggur Umhyggju lið

Viðskiptaráð Íslands ákvað í ár að styrkja Umhyggju um sömu upphæð og varið hefur verið í að senda jólakort, 30.000 kr. Að sögn Finns Oddssonar, framkvæmdastjóra VIðskiptaráðs, er hér um táknrænan stuðning við hið góða starf Umhyggju að ræða og kann félagið Viðskiptaráði bestu þakkir fyrir.