Umhyggjuganga frá Keflavík til Hófsós

" Sigvaldi Arnar Lárusson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum, gerðist kokhraustur og spáði því að Gylfi Sigurðsson yrði kjörinn íþróttamaður ársins 2014. „Hafi ég rangt fyrir mér skal ég hlaupa/ganga til Hofsós næsta sumar,“ sagði Sigvaldi á fésbókinni skömmu fyrir kjörið.
Þar sem ég hafði rangt fyrir mér mun ég ganga þá leið sem ég nefndi og safna styrkjum sem ég mun afhenda Umhyggju sem er félag til stuðnings langveikum börnum. Langar mig til að nota tækifærið á hvetja fólk og fyrirtæki til að styrkja karlinn í þessu."

þessar upplýsingar má finna feisbókarsíðu verkefnisins