Umhyggju berast styrkir


Á síðustu dögum hafa Umhyggju borist veglegir styrkir. Krónan hefur styrkt félagið um 1.000.000 krónur og stúka 7 Þorkell Máni úr Oddfellowreglunni veitti 300.000 króna styrk.

Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir þessa höfðinglegu styrki sem koma sér afskaplega vel fyrir félagið nú í aðdraganda jóla.