Tombóla til styrktar Umhyggju

Þeir Ísak Máni Loftsson, Ýmir Darri Hreinsson og Gísli Hafsteinn Einarsson eru 8 ára strákar úr Hraunvallaskóla í Hafnarfirði. Þeir félagar héldu tombólu til styrktar langveikum börnum fyrir utan Bónus á Völlunum og söfnuðu rúmum 6000 krónum. Þessir frábæru strákar færðu Umhyggju ágóðann nú í vikunni og þökkum við þeim kærlega fyrir!


tombóla

Ísak Máni Loftsson, Ýmir Darri Hreinsson og Gísli Hafsteinn Einarsson.