Sumarúthlutun í Pálínuhúsi - Reykjavík

Nú geta félagsmenn Umhyggju og aðildarfélaga Umhyggju sem búa utan höfuðborgarsvæðisins sótt um sumarúthlutun í nýrri íbúð Umhyggju í Kuggavogi 15, 104 Reykjavík, á tímabilinu 17. júní til 5. ágúst. Íbúðin er leigð í viku í senn frá föstudegi til föstudags og kostar vikuleiga kr. 25.000.

Íbúðin er í nýju hverfi miðsvæðis í Reykjavik. Í henni eru tvö svefnherbergi (annað með hjónarúmi, hitt með sjúkrarúmi) og stofa/alrými með svefnsófa og góðri borðaðstöðu. Fatlaðrabílastæði í eign Umhyggju er í bílakjallara. Í íbúðinni er sjúkrarúm; lyftari, ungbarnarúm, sturtustóll og tvær dýnur eru í geymslu í kjallara.

Umsóknarfresturinn rennur út miðvikudaginn 13. apríl. Úthlutun verður tilkynnt í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl.

Úthlutunarreglur eru þær sömu og í orlofshúsum Umhyggju.

 Sækja um