Það gleður okkur að segja frá því að Sólblómabandið er nú fáanlegt hjá Umhyggju - félagi langveikra barna.
Sólblómabandið er ætlað fólki með ósýnilega fötlun, sjúkdóma eða skerðingar. Sá sem ber bandið gefur á látlausan hátt til kynna að hann þurfi mögulega á skilningi, aðstoð og sveigjanleika að halda t.d. í samgöngum, á fjölförnum stöðum, í vinnu eða verslunum. Með sólblómabandinu má auka skilning og tillitssemi annarra í umhverfinu í garð þess sem ber bandið.
Sólblómabandið er nú þekkt í yfir 100 löndum og með hverju árinu bætist í hóp fyrirtækja, flugvalla, opinberra staða og fleira sem nota sólblómabandið til að auka aðgengi og inngildingu þeirra sem á þurfa að halda. Hér má lesa meira um sólblómabandið.
Félagsmenn og aðrir sem eru með ósýnilega fötlun/sjúkdóma geta nú sótt um að fá Sólblómabandið endurgjaldslaust á skrifstofu Umhyggju. Hægt er að sækja um hér.