Skyggnilýsingarfundur og kvikmyndasýning til styrktar Umhyggju

Valgarður Einarsson og Þórhallur Guðmundsson miðlar hafa í samvinnu við Sambíóin, ákveðið að halda skyggnilýsingarfund og kvikmyndasýningu dagana 7. og 8. maí í Háskólabíói í Reykjavík og Nýja Bíói á Akureyri til styrktar Umhyggju. Þetta hefur verið gert tvisvar sinnum áður og gerði það mikla lukku og vonandi verður svo einnig nú.