Opið fyrir umsóknir um orlofshús í sumar

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús Umhyggju í Brekkuskógi og Vaðlaborgum í sumar. Um er að ræða tímabilið 27. maí til 2. september og eru húsin leigð út í viku í senn, frá föstudegi til föstudags.

Umsóknarfrestur er til 15. mars og verða umsóknirnar teknar fyrir að þeim tíma loknum. Úthlutun verður tilkynnt í kringum 10. apríl.

Hér má sjá úthlutunarreglur.