Niceair og Umhyggja í samstarf

Við erum í skýjunum með samstarf Umhyggju við Niceair sem hyggst veita langveikum börnum sérstök kjör af utanlandsferðum með þessu nýstofnaða flugfélagi sem flýgur frá Akureyri.

Til að létta undir með fjölskyldum langveikra barna og auðvelda þeim ferðalög erlendis býður Niceair langveikum börnum sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum Umhyggju frítt flug til allra áfangastaða sinna og foreldrum þeirra 50% afslátt fljúgi þeir með barninu

Áfangastaðir Niceair í sumar eru Kaupmannahöfn, Tenerife og London, en veturinn 2022-2023 verður flogið til Kaupmannahafnar, London og Manchester.

Til þess að bóka þarf að hafa samband við niceair@niceair.is með upplýsingum um áfangastað, dagsetningar, farþega og hvort um sé að ræða félagsaðild í Umhyggju eða aðildarfélagi (upplýsingar um hvaða félag), og flugfélagið sér svo um rest. Hægt er að kynna sér flugfélagið og áfangastaðina á vefsíðu félagsins.