Lína Langsokkur í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið býður fjölskyldum langveikra og fatlaðra barna sem eru í Umhyggju eða aðildarfélögum upp á miða á stórskemmtilegu leiksýninguna um Línu Langsokk meðan enn eru til miðar!

Sýningardagar eru 17. maí, 23. maí, 31. maí og 6. júní. Umsókn um miða fer fram hér en athugið að miðar eru af skornum skammti svo best er að hafa hraðar hendur. Hámarks fjöldi miða sem hægt er að sækja um eru 4 á hverja fjölskyldu.