Könnun um vef fyrir sjúklinga og aðstandendur

Gert er ráð fyrir að sjúklingur fái aðgang að „minni síðu” á vef spítalans þar sem hann hafi yfirsýn yfir sín mál hjá spítalanum, s.s. tímapantanir, niðurstöður rannsókna, o.s.frv. Meistaranemar í verkefnisstjórnun við Háskóla Íslands tóku að sér að greina helstu þarfir varðandi slík vef og ber hann vinnuheitið Kvikan.

Til að fá fram hugmyndir almennings varðandi efni vefsins var ákveðið að gera þessa könnun. Hún er aðgengileg á heimasíðum nokkurra sjúklingasamtaka og á vef LSH, www.landspitali.is. Svar þitt væri mikils metið. Það tekur aðeins um 2 - 5 mínútur að svara könnuninni. Niðurstöður hennar verða hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi undirbúning að gerð vefsins.

Könnunin er ekki persónugreinanleg og er hægt að svara henni til og með 30. mars 2007.

Viltu hafa áhrif með því að taka þátt í könnuninni?
Smelltu hér til að taka þátt.