KÍ styrki Umhyggju

KI
KI

Kennarasamband Íslands hefur ákveðið að styrkja Umhyggju um 350.000 krónur í stað þess að senda jólakort nú fyrir jólin. Verður styrkurinn notaður til að bæta aðstöðu í tveimur sumarhúsum Umhyggju. Ragna framkvæmdastjóri Umhyggju veitti styrknum viðtöku á dögunum, en Þórður Hjaltested, formaður KÍ, afhenti styrkinn.

Við hjá Umhyggju þökkum kærlega fyrir styrkinn og framtakið!