Hlaupum í þágu Umhyggju í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis!

Reykjavíkurmaraþon Glitnis verður nú haldið í 25. sinn laugardaginn 23. ágúst. Við hvetjum alla sem vilja styðja við starf Umhyggju að hlaupa fyrir félagið.

Fjórar vegalengdir eru í Reykjavíkurmaraþoninu, auk Latabæjarhlaupsins.

  • 3 km (skemmtiskokk)
  • 10 km
  • 21 km (hálfmaraþon)
  • 42 km (maraþon)
  • Latabæjarhlaup (1 km fyrir börn á öllum aldri)

Skráning fer fram hér.

Einnig er hægt að styðja okkur með því að heita á hlaupara sem hafa skráð sig til styrktar Umhyggju.
Heitið er á hlaupara hér.