Heimsókn og gjöf frá Bowentæknifélagi Íslands

Í dag, föstudaginn 9. desember, fengum við hjá Umhyggju heimsókn frá góðum gestum, þeim Valgerði Solveigu Pálsdóttur og Aðalheiði Svanhildardóttur sem sitja í stjórn Bowentæknifélags Íslands. Þær færðu félaginu 100.000 króna gjöf sem er afrakstur söfnunar í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í sumar. Bowentæknar voru með aðstöðu þar sem hlaupurum var boðið að koma í bowen að hlaupi loknu og greiddu fyrir það kr.5000 sem runnu óskertar til Umhyggju.

Við þökkum Bowentæknifélaginu (www.bowen.is) hjartanlega fyrir frábært framtak!