Fyrsta úthlutun úr Líknarsjóði Ögnu og Halldórs Jónssonar

Liknarsjodur_ognu_og_HalldorsFyrsta úthlutun úr Líknarsjóði Ögnu og Halldórs Jónssonar fór fram 8. desember síðastliðinn en þá var félögum og verkefnum tengdum börnum veittir styrkir samtals að upphæð 30 milljóna króna. Umhyggja var meðal þeirra félaga sem fengu úthlutað hæsta styrknum úr sjóðnum úr þessari fyrstu úthlutun og kann félagið sjóðnum hinar bestu þakkir fyrir veglegt framlag.

Myndin hér til hægri var tekin við afhendingu styrksins.

Eftirtaldir aðilar hlutu hver um sig 6 milljónir króna:
Umhyggja: Félag til stuðnings langveikum börnum.
Neistinn: Styrktarfélag hjartveikra barna.
Ás styrktarfélag: Sjálfseignarstofnun í þjónustu við fatlaða.

Eftirtaldir aðilar hlutu hver um sig 4 milljónir króna:
Barnageð: Félag foreldra og áhugafólks um geðraskanir barna og unglinga.
Umsjónarfélag einhverfra: Félag sem gætir réttar einhverfra í hvers kyns hagsmunamálum.

Eftirtaldir aðilar hlutu hver um sig 2 milljónir króna:
Foreldrar-meðganga-barn: Verkefni Geðdeildar og Kvenna-og barnasviðs Landsspítalans.
Thorvaldsensjóðurinn: Styrktarsjóður fyrir sykursjúk börn.

Halldór Jónsson fæddist 16. janúar 1916 á Kirkjubæ í Hróarstungu og lést þann 23. febrúar 1977. Agna Guðrún var fædd í Danmörku þann 29. nóvember 1915 og lést þann 24. ágúst 2009. Agna og Halldór stofnuðu fyrirtækið Halldór Jónsson ehf þann 1. febrúar 1955 og fagnar fyrirtækið því 55 ára afmæli á þessu ári.
Agna stofnaði Líknarsjóð Ögnu og Halldórs Jónssonar árið 1982 og átti hann að taka til starfa að henni látinni.  Hún ánafnaði sjóðnum öllum eigum þeirra hjóna og er hlutverk hans  að styrkja hvers konar líknarmál á Íslandi. Stjórn sjóðsins skipa Helgi Jóhannesson, Ingibjörg Magnúsdóttir og Kristján S. Sigmundsson.