Fundur um stöðu og réttindi langveikra barna með tvö heimili

Langveikfundur
Langveikfundur

Landssamtökin Þroskahjálp, Umhyggja – félag langveikra barna og Einhverfusamtökin boða til fundar um stöðu og réttindi fatlaðra og langveikra barna með tvö heimili þann 17. október kl.17.00.
Aðstandendur fatlaðra og langveikra barna með tvö heimili eru hvattir til að mæta, en markmið fundarins er að heyra í þeim varðandi aðgengi að stuðningsþjónustu, hjálpartækjum og upplýsingum frá skólum, félagsþjónustu og öðrum þjónustuveitendum. 

Fundurinn verður haldinn á Háaleitisbraut 13, 4. hæð.