Ferðamenn styrkja Umhyggju gegnum Premier Tax Free

Undanfarin sex ár hefur Premier Tax Free á Íslandi boðið ferðamönnum að gefa tax free endurgreiðslu sína til góðgerðarmála. Allur ágóðinn, sem eru 10 milljónir, hefur runnið til Umhyggju. Arnar Sveinn Geirsson, markaðssjóri Premier Tax Free, segist ekki vita til þess að þetta fyrirkomulag tíðkist annars staðar. Umhyggja er að vonum afar þakklát enda hefur féð nýst félaginu afar vel, t.d. til viðhalds á sumarbústöðum og fleiri góðra hluta.  

Premier Tax Free


Við þökkum Premier Tax Free og ferðamönnum fyrir að hugsa til okkar. 

Premier Tax Free