Bláa Lónið styrkir Umhyggju

Bláa Lónið hefur veitt Umhyggju, félagi langveikra barna og fjölskyldna þeirra, styrk. Styrkurinn felst í 10 fjölskyldukortum, hvert kort veitir ótakmarkaðan aðgang í Bláa Lónið fyrir tvo fullorðna og fjögur börn 16 ára og yngri. Heildarverðmæti styrksins er 360.000 krónur.

Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónins hf., afhenti Rögnu K. Marínósdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju, og Hafsteini Helgasyni, 15 ára félaga í Umhyggju kortin fimmtudaginn 8. janúar í Bláa Lóninu.

Bláa Lónið styrkir góð málefni á ári hverju í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort. „Okkur hjá Bláa Lóninu finnst það sérstaklega ánægjulegt að geta með þessum hætti veitt langveikum börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til að slaka á og endurnæra kraftana í Bláa Lóninu,“ sagði Grímur Sæmundsen.

Hafsteinn sem er 15 ára nemandi í Njarðvíkurskóla veitti fyrsta kortinu viðtöku. Hann sagði það skemmtilegt að hafa möguleika á að bjóða fjölskylduni í Bláa Lónið þar sem  hún gæti  átt góða stund saman.