Afhending Hetjuteppa

Hetjuteppi frá Íslenska bútasaumsfélaginu
Hetjuteppi frá Íslenska bútasaumsfélaginu

Miðvikudaginn 13. mars verður afhending á svokölluðum Hetjuteppum, en Íslenska bútasaumsfélagið hefur gefið langveikum börnum teppi í mörg ár. Börnum í aðildarfélögum Umhyggju, sem ekki hafa fengið teppi, er boðið að koma og velja sér teppi miðvikudaginn 13. mars, á milli kl.16.30 og 17.30 í húsnæði Umhyggju, Háaleitisbraut 13, 4. hæð. 

Þær fjölskyldur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og sjá sér ekki fært að mæta eru hvattar til að hafa samband næst þegar komið er til Reykjavíkur og mæla sér mót við okkur.