Aðalfundur Umhyggju 4. apríl kl. 17:00

Aðalfundur Umhyggju verður haldinn 4. apríl næstkomandi, kl.17.00, í húsnæði félagsins að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund, (28. mars í síðasta lagi) á skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is og til formanns stjórnar Regina.Lilja.Magnusdottir@reykjavik.is

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (21.mars í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.

ATHUGIÐ: Tillögur til lagabreytinga skulu berast skrifstofu Umyggju fyrir 15.mars næstkomandi, umhyggja@umhyggja.is. Hér má sjá núverandi lög Umhyggju, en tillögur stjórnar til lagabreytinga má sjá hér .