Aðalfundur Umhyggju 2. júní kl. 17:00

Aðalfundur Umhyggju – félags langveikra barna verður haldinn 02. júní næstkomandi, kl. 17.00, í húsnæði Umhyggju, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Laus sæti til kosningar eru tvö sæti fagmanna.

Tillögur að framboðum í stjórn Umhyggju skulu berast eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund (26. maí í síðasta lagi) á skrifstofu Umhyggju, umhyggja@umhyggja.is og til formanns stjórnar, margretvalam@gmail.com.

Tillögur að lagabreytingum skulu berast skrifstofu Umhyggju eigi síðar en 21 degi fyrir aðalfund (12. maí í síðasta lagi).

Við vekjum athygli á því að aðeins þeir sem eru félagsmenn og hafa greitt félagsgjöld a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund (19. maí í síðasta lagi) hafa atkvæðisrétt.

 

Með bestu kveðjum

Stjórn Umhyggju