Umsókn um orlofshús um jól

Félagsmenn Umhyggju hafa aðgang að tveimur glæsilegum orlofshúsum. Húsin eru staðsett í Brekkuskógi rétt fyrir austan Laugarvatn og í Vaðlaborgum við Akureyri. 

Jólaúthlutun skiptist í tvennt, annars vegar tímabilið 23. til 28. desember og hins vegar 28. desember til 2. janúar. Geta þarf þess í umsókn hvort tímabilið sótt er um.

Umsóknarfrestur vegna jólaúthlutunar er 20. október og verða allar umsóknir meðhöndlaðar eftir þann tíma. Niðurstaða úthlutunar liggur fyrir í kringum 30.  október.

Athugið að þrif eru ekki innifalin í jólaleigu. Verð jólaleigu er 25.000.

 

Reglur um úthlutun orlofshúsa








captcha