Umhyggja á glæsilegt orlofshús í Brekkuskógi í uppsveitum Árnessýslu.
Húsið er 92 fm á einni hæð með 3 svefnherbergjum, baðherbergi og opnu rými sem er stofa, borðstofa og eldhús. Húsið er aðgengilegt hjólastólum og er búið sjúkrarúmi og lyftara.
Í öllum herbergjum eru tvíbreið rúm og er svefnaðstaða fyrir 8 manns auk rúms fyrir ungabarn.
Pallurinn kringum húsið er 75 fm með garðhúsgögnum, gasgrilli og aðgengilegur hjólastólum. Þar er einnig heitur pottur og rampur niður á stóra grasflöt. Í garðinum eru trampolín og leiktæki.
Í húsinu eru þvottavél, uppþvottavél og Nespresso kaffivél (athugið að taka þarf með eigin kaffihylki), sjónvarp og WiiSwitch leikjatölva. Í húsinu er einnig þráðlaust internet auk rafhleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Gestir þurfa sjálfir að koma með snúru/tengil fyrir hleðslustöð.
Athugið að gestir þurfa sjálfir að koma með lök, sængurver, handklæði og sápu.
Athugið: Í sumarleigu og yfir hátíðir eru þrif EKKI innifalin. Þrif eru hins vegar innifalin í helgar- og vikuleigu í vetrarleigu (utan jóla, áramóta og páska).
Úthlutunarreglur orlofshúsa má finna hér.
Við biðjum ykkur vinsamlegast um að kynna ykkur umgengnisreglur orlofshúsa Umhyggju áður en dvöl ykkar hefst, en brot á þeim getur leitt til þess að leiguumsóknum í framtíðinni sé hafnað. Umgengnisreglurnar má finna hér.