Núvitund fyrir foreldra - skráning

ATHUGIÐ: Fullt er á námskeiðið, en hægt er að skrá sig á biðlista með því að fylla út eyðublaðið.

Námskeiðið Núvitund fyrir foreldra (Mindful parenting) var þróað af sálfræðingunum dr. Susan Bögels og dr. Kathleen Restifo. Í núvitund fyrir foreldra eru foreldrar þjálfaðir í að beina athyglinni að því sem er hér og nú. Áherslan er á að vera frekar en að gera þegar þeir eru með börnunum sínum. 

Námskeiðið er haldið í samstarfi við Umhyggju og er ætlað foreldrum sem eru félagsmenn í Umhyggju eða aðildarfélögum Umhyggju. Kostnaður er að stærstum hluta niðurgreiddur af Samfélagsstyrk Landsbankans og Umhyggju. Skráningargjald þátttakenda er 5000 kr. fyrir einstaklinga og 7500 kr. fyrir pör.

Leiðbeinendur eru Álfheiður Guðmundsdóttir og Linda Björk Oddsdóttir sálfræðingar sem hafa áralanga reynslu af að vinna með börnum og foreldrum þeirra. Þær hafa lokið þjálfunarnámskeiði hjá dr. Bögels og hlotið kennsluréttindi til að leiða námskeiðið.

Námskeiðið verður kennt á miðvikudögum frá kl. 20-22 í húsnæði Sálstofunnar, Hlíðarsmára 17. Námskeiðið er átta skipti og mun hefjast 8. mars og ljúka 3. maí.

Skráning er hjá Umhyggju og verður greiðsluseðill skráningargjalds sendur í heimabanka.

Laus pláss á námskeiðinu eru 14.