Takk fyrir komuna á Umhyggjudaginn!

Sunnudaginn 30. ágúst síðastliðinn var Umhyggjudagurinn haldinn hátíðlegur í þriðja sinn. Hátíðahöldin fóru fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og tóku mörg hundruð manns þátt í deginum.

Allar fjölskyldur voru boðnar velkomnar og fengu allir sem skráðu sig til leiks frítt inn í garðinn á milli 12 og 16, auk þess sem boðið var upp á ís og börnin fengu buff og tattú. Gulu hetjurnar úr Team Rynkeby Ísland liðinu mættu á svæðið með hjólin sín og kynntu verkefnið, en þau hjóla á hverju sumri 1300 km leið milli Danmerkur og Parísar til styrktar langveikum börnum.

Dagurinn heppnaðist stórvel og þökkum við innilega fyrir komuna og samveruna!