Þriðjudaginn 9. júní heimsóttum við hjá Umhyggju Grunnskólann í Þorlákshöfn og veittum viðtöku styrk að upphæð 250.000 krónur. Styrkurinn er ágóði af Þemadögum Þorpsins sem haldnir voru í skólanum fyrr á þessu skólaári. Nemendur lögðu þar sitt af mörkum með fjölbreyttum hætti og söfnuðu fé til góðs málefnis. Það var nemendaráð skólans sem tók ákvörðun um að styrkja Umhyggju að þessu sinni.
Hjartans þakkir til þessara frábæru nemenda og samfélagsins í Þorlákshöfn fyrir yndislegt framtak og veglegan styrk!