Team Rynkeby er einstakt hjólalið sem hjólar frá Danmörku til Parísar á 7 dögum og safnar styrkjum fyrir Umhyggju.
Mikilvægur liður í styrktarsöfnuninni er páskaeggjasalan sem fer fram ár hvert en nú styttist óðfluga í páskana og því tilvalið að huga að páskaeggjakaupum. Fyrirtæki hafa verið dugleg að nýta sér þetta tækifæri og keypt páskaegg fyrir starfsmenn sína og styrkt gott málefni á sama tíma en allur ágóði rennur beint til Umhyggju.
Um er að ræða páskaegg í stærð nr. 4 og kostar stykkið 3.900 kr.
Hægt er að hafa samband við Umhyggju til að ganga frá pöntun eða hafa beint samband við Team Rynkeby á samfélagsmiðlun þeirra eða á netfanginu island@team-rynkeby.com.