Lokað fyrir komur á skrifstofu Umhyggju - þjónusta óskert að öðru leyti

Vegna hertra samkomutakmarkana hefur Umhyggja ákveðið að loka fyrir komur á skrifstofu félagsins Háaleitisbraut 13 frá og með 5. október til og með 10.nóvember. Þjónusta verður óskert en mun fara fram í gegnum síma, tölvupóst og fjarfundarbúnað. Áfram verður boðið upp á sálfræðiþjónustu í gegnum viðurkenndan fjarfundarbúnað.

Við hvetjum ykkur til að vera í sambandi ef við getum mögulega aðstoðað ykkur eitthvað nú á þessum skrýtnu tímum. Síminn er 5524242 og netfangið info@umhyggja.is.