Lokað fyrir almennar heimsóknir á skrifstofu til 2.febrúar - þjónusta áfram gegnum síma/tölvupóst og sálfræðiþjónusta óskert á skrifstofu

Vegna samkomutakmarkana tengt Covid-19 verður skrifstofa Umhyggju lokuð fyrir almennar heimsóknir til 2. febrúar. Berglind sálfræðingur Umhyggju mun þó veita viðtöl á skrifstofu félagsins og öll önnur þjónusta mun fara óskert fram í gegnum síma og tölvupóst. Við hvetjum ykkur því til að hafa samband ef eitthvað er.

Við hvetjum ykkur öll til að fara varlega og vel með ykkur og munum að bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.