KVAN námskeið fyrir systkini langveikra barna 10-12 ára fer af stað 7. apríl

Þann 7. apríl fer af stað sjálfstyrkingarnámskeið Umhyggju og KVAN sem ætlað er 10-12 ára systkinum langveikra barna. Námskeiðið stendur yfir í 8 vikur og er kennt 1 sinni í viku, 2,5 klst í senn. Þar sem Umhyggja niðurgreiðir stærstan hluta kostnaðar er gjaldið aðeins kr. 7500 fyrir námskeiðið. Kennt er á miðvikudögum frá 15:30 til 18:00 í húsnæði KVAN.

Námskeiðið er sérhannað og skipulagt af KVAN en starfsmenn og stjórnendur fyrirtækisins hafa mikla menntun og áralanga reynslu í námskeiðahaldi fyrir ungt fólk til að ýta undir meira sjálfstraust, bætta sjálfsmynd, leiðtogahæfileika og betri líðan ungmenna.

Til þess að geta tekist á við daglegt líf er mjög mikilvægt að hafa góða samskipta-, félags- og vináttufærni en þessir þættir skipta sköpum þegar kemur að líðan og heilsu barna. Að lenda í vandræðum í jafningjasamskiptum getur haft í för með sér víðtækar og langvarandi neikvæðar afleiðingar. Því er mikilvægt fyrir öll börn að fá fræðslu og þjálfun í þessum færniþáttum. Leiðtogafærni er einnig mjög mikilvæg og getur hjálpað börnum að vegna vel í lífinu.

Markmið námkseiðsins eru m.a.:

Ábyrgð og hvernig hægt er að takast á við ofvaxna ábyrgðartilfinningu
* Að læra að hlusta á sína eigin rödd og standa með sjálfum sér
* Að leyfa sér að hafa gaman og takast á við samviskubit
* Að læra inn á sína styrkleika og setja sjálfan sig í fókus
* Að læra að bregðast við óþægilegu áreiti eða aðstæðum, hvort sem er heima eða meðal ókunnugra
* Að læra að taka hrósi og upplifa sig mikilvægan

Hámarksfjöldi á námskeiðið er 20 manns.

Skráning á námskeiðið