KVAN námskeið fyrir 7-9 ára systkini fer af stað í haust

Í ágúst mun Umhyggja í samstarfi við KVAN bjóða upp á námskeið fyrir 7-9 ára systkini langveikra barna. Þetta er í fyrsta skipti sem námskeið stendur þessum aldurshópi til boða, en Umhyggja hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið fyrir 10-12 ára og 13-15 ára langveik börn og systkini.

Námskeiðið er 8 skipti, 2 klst í senn og hefst 19. ágúst. Þar sem námskeiðsgjald er að langstærstum hluta greitt af Umhyggju er skráningargjald aðeins kr.7000.

Búið er að opna fyrir skráningar hér.