Kóngsbakki ehf styrkir Umhyggju

Nú um páskana fékk Umhyggja óvæntan og veglegan glaðning þegar 4 milljón króna styrkur barst frá félaginu Kóngsbakka ehf.

Styrkir af þessum toga eru ómetanlegir fyrir starf Umhyggju en með þeim getum við haldið úti og aukið við ýmsa þjónustu til fjölskyldna langveikra barna, svo sem sálfræðiþjónustu, námskeið fyrir systkini langveikra barna og margt fleira.

Við erum innilega þakklát og skilum okkar bestu kveðjum til aðstandenda Kóngsbakka ehf.