Góðgerðarakstur á Menningarnótt

 Á Menningarnótt, laugardaginn 19. ágúst, mun Félag Harley Davidson eigenda á Íslandi enn á ný bjóða fólki að vera farþegar á hjólum sínum í stuttri ferð um miðborgina til styrktar Umhyggju. Ekið verður frá Austurvelli (framan við Alþingi) að Suðurgötu, um Skothúsveg og Tjarnargötu og loks um Vonarstræti og Templarasund að Kirkjustræti, frá kl. 14.00 - 16.30. 

Rúnturinn kostar 1.000 kr. og rennur upphæðin óskipt til Umhyggju. Við þökkum H.O.G.-Chapter Iceland hjartanlega fyrir þetta frábæra framtak!

Sjá nánar hér .