Gleði sem gefur áfram

Við erum svo þakklát fyrirtækinu Okashi fyrir að hafa haft samband og óskað eftir samstarfi en í hverjum mánuði verður valin ein tiltekin vörulína hjá fyrirtækinu þar sem  5-10% af sölu mun renna til Umhyggju. 

Okashi var stofnað til að gleðja, til að minna okkur á litina og barnslegu gleðina sem oft gleymist í dagsins amstri. Með samstarfi Okashi og Umhyggju fær sú hugmynd að ná aðeins lengra.

Fyrsta vara mánaðarins er Skullpanda, sem er ein vinsælasta vörulínan hjá Okashi.

Við hvetjum ykkur til að kynna ykkar vörur Okashi en nú hefur fyrirtækið einnig opnað nýja og endurbætta vefsíðu og bætt við enn fleiri Skullpanda vörum.

Vörurnar koma í skemmtilegu boxi en með hverju boxi fylgir ekki bara spenna og gleði, heldur líka stuðningur við gott málefni.

Við hvetjum ykkur eindregið til að kíkja á okashi.is og gefa áfram.